Það er rétt....

...staðan er mjög alvarleg. Eignir fólks eru að brenna á verðbólgubálinu og mér finnst ráðamenn þegja þunnu hljóði um hvað skal gera við verðbótaþátt íbúðalána og verðtrygginguna yfir höfuð.  Blekið var varla þornað á atkvæðaseðlunum í kjöri til forseta ASÍ þegar hann sagði að verðtrygginguna mætti ekki afleggja því þá myndu lífeyrissjóðirnir og Íbúðalánasjóður fara á hausinn.  Ef ég mætti velja þá vel ég frekar að Íbúðalánasjóður fari á hausinn én sá fjöldi íbúðaeigenda sem á fullt í fangi með að greiða afborganir sínar og eignir þeirra eru orðnar verðlausar.  Svo er hann settur yfir nefnd sem á að koma með tillögur til úrbóta hvað vanda lántakenda varðar.  Ég segi; burt með verðtrygginguna og það strax.

Yfir og út - meira síðar


mbl.is Staðan er grafalvarleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er alveg sammála! Manstu eftir fyrstu íbúðinni minni sem ég keypti 84 ? Við áttum 1/3 í henni við kaup. Leyfðum okkur aldrei neitt, vorum meira að segja bíllaus um tíma. Áttum íbúðina í 4 ár seldum hana og komum út á sléttu. Allt ókkar f+e uppurrið. Það sama er að gerast núna, lánin hækka og og verðtryggingin er allt að drepa. Enda bara séríslenskt fyrirbæri. Ojbjakk, eins og litlu börnin segja!

Kiddý systir (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 22:14

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Heeelllll´´uúú´   er á leið í bæinn um helgina, spurning um göngu eða hitting.Heyrði í Óla litla og Inga litla og þeir eru klárir. verðum í bandi. Núna ræsi ég alla út.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 17.11.2008 kl. 18:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Björn Zoéga Björnsson
Björn Zoéga Björnsson
Snillingur  allavega að sögn annarra
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband